Síðastliðinn sunnudag fór ég á frábæra tónleika með Rufus Wainwright. Kappinn var einn á sviðinu og skiptist á að spila á flygil og gítar. Maðurinn er náttúrulega snillingur, frábær söngvari og píanóleikari. Hann tók nokkur frábær lög og þar má meðal annars nefna Going to a town, 11:11, Cigarettes and chocolate milk, Gay messiah, California, Gray gardens og Not ready to love. Hann endaði síðan tónleikana á því að taka Halleluja, en þess má til gamans geta að hann gleymdi textanum, en þá fór hann bara að hlæja og sagði eitthvað á þessa leið : Oh fuck, I don´t remember what´s next. Hann reddaði þessu þó fyrir horn þannig að það kom ekki að sök.
Hann átti það til að tala svolítið á milli laga og þar hrósaði hann okkur íslendingum fyrir það hvað við værum með flotta rassa. En ástæðan fyrir þessu hrósi var sú að hann hafði skellt sér í ræktina á sunnudaginn (geri ráð fyrir Laugum) og þar átti hann erfitt með að einbeita sér fyrir öllum heitu karlmönnunum sem þar spókuðu sig um.
Einnig fræddi hann okkur aðeins um fötin sem hann klæddist en það fór ekki framhjá neinum að hann var klæddur í forljótan jakka eða vesti. En hann tilkynnti tónleika gestum að þennan jakka hafði hann nýlega keypt í Noregi handa mömmu sinni og ákveðið að koma fram í honum á tónleikunum. Mjög spes fatasmekkur.
En nóg um þessa tónleika í bili og um að gera að fara að einbeita sér að þeim næstu sem eru Radiohead í Berlín. Einnig las ég í fyrradag að Damien Rice myndi kannski spila á Borgarfirði Eystri í sumar. Engin spurning um að skella sér þangað ef rétt reynist.
Við New York færsluna mína komu nokkrar spurningar frá honum Bjarka sem ég sé mig knúinn til að svara til að forðast allan misskilning. Því koma hér svör við þessum spurningum.
- Hvernig náði blökkumaðurinn að vippa honum út og taka þig í rassgatið án þess að þú tækir eftir því?
Já þú meinar. En málið var nú kannski ekki alveg svona bókstaflegt. Heldur var það nú þannig að nokkrum blökkumönnum tókst að hafa mig og Hjört að algjörum fíflum og taka þannig af okkur þó nokkuð af aurum. Ég ætla ekki að fara nánar út í það þar sem ég var búinn að lofa að segja engum frá því hvernig þetta gerðist og ég hef staðið við það að mestu. Þú getur kannski dobblað Hjört til þess að segja þér frá þessu við gott tækifæri..
2. Hver var fallegi maðurinn á veitingastaðnum (því ef hann var ekki frægur að þá er þessi setning þín verulega gay)?
Þessi fallegi maður er nú ekki frægur svo ég viti, en hann ætti að vera það, svo fallegur var hann. Málið var líka þannig að þetta átti að hljóma frekar gay þar sem þessi maður bræddi okkur báða með lúkkinu einu saman. Við skömmumst okkar ekkert fyrir þetta enda vitum við að engin mannvera hefði staðist kynþokka þessa unga fola.
- Hvað er að "að fá puttalinginn?" (ef það er að fá fuck merki... hvernig gat það verið hápunktur ferðarinnar)?
Maður þarf náttúrulega að vera sophistcated heimsborgari til að ná meiningunni í þessu en ég skal reyna að útskýra þetta betur. Þannig er mál með vexti að þegar maður fer á leiki með NYK þá er hægt að kaupa svona stóra apelsínugula hendi sem er í hí á þig stellingunni. Það er þetta sem ég kalla puttalinginn. Læt fylgja mynd með þér til glöggvunar.

- Hvernig var myndavélinni stolið (hef þó "Grjóna" sterklega grunaðan)?
Úfff ég nenni varla að fara út í þetta skriflega þannig að ég skal gefa þér stutt svar en lengri útgáfuna færðu seinna. Það var ekki Grjóni sem stal henni enda veit ég ekki hver það er, en ef þú ert að meina Sigurjón þá var það heldur ekki hann. Málið var þannig að við gleymdum myndavélinni á bar. Barþjónnin tók myndavélina. Síðan kom blökkumaður að barborðinu og sagðist hafa gleymt myndavél og barþjónnin afhenti honum myndavélina. Þegar við komum aftur á staðinn þá var þrjóturinn nýstunginn af með allar myndirnar okkar og Lalli var ekki kátur kall.
- Og síðasta spurningin ... hvað voru mörg lið sem tóku þátt í streatball mótinu á Sigló?
Ég man ekki hvað þau voru mörg en þau voru þó nokkur allavega. Þetta varð gríðarlegt bæjarhneyksli á sínum tíma og ekki voru allir á eitt sáttir.
Jæja Bjarki minn ég vona að þetta svari því sem þér brennur mest á hjarta, en ég er einnig með spurningu fyrir þig ? Núna er auglýsing á Íslandi þar sem fram kemur orðatiltækið : að vera tanaður í drasl. Er þetta ekki bara ný útfærsla á 2 ára gömlum Lalla frasa frá Cabo a.k.a : að brenna í drasl ? Er þetta ekki annars minn frasi ? Spyr sá sem ekki veit.